Áhugasömum til upplýsinga
Fimmtudagur, 12. ágú

 

Nú er farið að líða að seinnuhluta sumars og hryssur tínast heim frá stóðhestum.  Um 50 hryssum er haldið þetta árið og til gamans látum við hér fylgja þá hesta sem notaðir voru á hryssur frá Feti.

Vilmundur frá Feti

Roði frá Múla

Kiljan frá Steinnesi

Hróður frá Refsstöðum

Héðinn frá Feti

Aron frá Strandarhöfði

Orri frá Þúfu

Freymóður frá Feti

Auður frá Lundum

Dynur frá Hvammi

Dugur frá Þúfu

Stáli frá Kjarri

Nonni frá Feti

Gaumur frá Auðsholtshjáleigu

Spói frá Hrólfsstaðahelli

Ágústínus frá Melaleiti

Ómur frá Kvistum

Sædynur frá Múla

k

l

y

 
 
Svali frá Feti sigrar töltið
þriðjudagur, 3. ágú

 

Eftir harða baráttu náði Sigurður Óli að sigra tölt keppnina á honum Svala frá Feti. Hér fylgir mynd af þeim félögunum.j

 
 
Góður árangur
Mánudagur, 2. ágú

 

Stórmót suðurlands var haldið um helgina ásamt kynbótasýningu.  Við óskum knöpum og eigendum innilega til hamingju með góðan árangur. Það var einnig gaman að sjá hvað hross sem ættuð eru frá Feti stóðu sig vel.  Hér koma myndir af nokkrum augnablikum helgarinnar.

 

g

Eyþór frá Feti. / Eigendur eru Bragi Guðmundsson og Valgerður Þorvaldsdóttir. Hann var í A úrslitum í B flokki.

 

j

Frakki Vilmundarson. / Eigandi og knapi er Viðja Hrund Hreggviðsdóttir. Hann var efstur í flokki 6v. stóðhesta.

h

Fjarki sonur Þrists frá Feti og Frakki Vilmundarson voru báðir í verðlaunasæti í 6v. stóðhestum.

 

g

Már frá Feti. / Eigandi og knapi er Viðar Ingólfsson.  Hann var í A úrslitum í A flokki.

 

j

María frá Feti. Knapi er Sigursteinn Sumarliðason og eigendur eru; Steinn Guðjónsson, Kári Steinsson, Bára Steinsdóttir og Brynja Guðmundsdóttir. 

 
 
Roði frá Múla
Miðvikudagur, 21. júl

Við viljum minna á að stórhöfinginn Roði frá Múla verður tilbúinn að sinna hryssum á seinna gangmáli hjá okkur hér á Feti.  Áhugasamir hafi samband í síma 8989644 Inga eða 8639644 Toni

 

 
 
Laus pláss undir Kiljan
Mánudagur, 12. júl

 

Eftir næstu helgi losna nokkur pláss undir Kiljan.  Áhugasamir geta hringt í Tona í síma; 863-9644.

 

h

 

k

(Hér eru Kiljan og Ingolf Nordal)

 
 
Frekar seint í rassinn gripið
Fimmtudagur, 1. júl

 

Jæja þá er komið að því að kynna nýja starfsfólkið á Feti, enda löngu kominn tími til.  Við getum nú ekki sagt að það sé mikið jafnvægi í kynjaskiptingu hér þar sem Toni er einn af sinni sort eftir að Beggi fór í veikindafrí.  Þannig að núna erum við 7 konur og 1 karl. Toni,  Dana Ýr, Linda Rún, Inga María, Andrea og svo 3 nýjar, þær Saga Mellbin, Carrie Lyonds Branth og Fanny Hallberg.  Jú og svo má ekki gleyma þeim Sissó og Sorrý! Það eru nýju músabanarnir á bænum. 

Sumarið hefur farið vel fram og allt í einu er það bara hálfnað án þess að maður hafi tekið eftir því.  Það verða sjálfsagt komin jól áður en að maður getur snúið sér við.  En hér koma myndir frá sumrinu og af starfsfólkinu.

 

Nåväl, nu är det dags att introducera ny personal på Fet. Vi kan inte säga att det är en bra balans mellan könen här där Toni är en i sitt slag efter Beggi blev sjukskriven och kommer inte tillbaka på ett bra tag. Så nu har vi 7 honor och en hane. Toni, Dana Ýr, Linda Rún, Inga Maria, Andrea, och tre nya, Saga Mellbin, Carrie Lyonds Branth och Fanny Hallberg. Ja och så får vi inte glömma det nyja möss jagarna dom Sissó och Sorrý.

 

 

h

Fanny Hallberg, Andrea Balz og Carrie Brandt.

 

t

 Sissó!

j

 Sorrý!

l

 

 
 
Laus pláss undir Hróður og Kiljan.
Miðvikudagur, 16. jún

Það eru nokkur pláss laus vegna forfalla undir þá eðal stóðhesta Kiljan frá Steinnesi og Hróður frá Refsstöðum.  Þeir sem hafa áhuga hringi í síma 8639644 Toni eða 8989644 Inga

Þeir sem eiga pantað undir Hróður komi með hryssurnar fyrir 19. júní

Hryssur sem eru að fara undir Kiljan eiga að mæta kl:14.00 á sunnudaginn 20. júní.l

 
 
Kynbótasýningar
Fimmtudagur, 10. jún

 

Kynbótasýningunum á Hellu lauk í síðustu viku með skemmtilegri yfirlitssýningu í frekar óskemmtilegu veðri.  Við sýndum 9 hross í allt.  8 hryssur og 1 stóðhest.   Hrossin voru flest langt frá því að vera í eins góðu formi og þau gætu verið vegna hestapestarinnar en við erum bara nokkuð sátt með okkar útkomu.    Hér koma nokkrar myndir af skemmtilegum augnablikum úr sýningunum.

 

h

Edinborg frá Feti

 

f

Már frá Feti

 

g

Freisting frá Feti

 

r

Nýey frá Feti

 
 
Nýjustu folöldin
Fimmtudagur, 3. jún

 

Dana skellti sér í göngutúr í fylfulla-hólfið með myndavélina meðferðis og skellti af nokkrum myndum af nýjustu folöldunum.  Eins og sjá má nutu þau veðurblíðunnar og hvíldu sig í hitanum.

 

Dana tog sig en promenad i värmen idag och tog bilder av de nyja fölen. 

l

 

d

 

i

 

f

 

f

 
 
Þjálfun hafin að nýju
Föstudagur, 28. maí

 

Nú er pestin á undanhaldi og þjálfun hafin á stórum hluta hrossanna.  Í blíðveðrinu á dögunum var nokkrum hrossum brugðið upp á afleggjara og ljósmyndarinn fylgdist með.

 

g

Már frá Feti

 

k

 Brynja Vilmundardóttir 4.v

 

f

Gjöf frá Feti

 

u

Már frá Feti

 

k

Gjöf frá Feti

 

y

Már frá Feti

 
 
Folald eftir folald
þriðjudagur, 18. maí

 

 

Jæja nú er þetta allt að gerast!  Vorboðarnir okkar eru orðin 6 talsins og er orðið spennandi á hverjum morgni að fara í fylfulla-hólfið og sjá hvort að nýtt folald hafi bæst í hópinn. Við rákum inn allar merarnar í morgunn til að taka þær sem voru kastaðar og fara með þær undir hesta.  Með myndunum af nýjustu folöldunum ætla ég að láta fylgja með myndir sem Dana og Andrea tóku þegar þær gerðu sér ferð og keyrðu inn í ösku óhugnaðinn fyrir helgi. 

 

g

Hérna er Filipía frá Feti með Þristsdóttir.

d

Hér er Andvör frá Hrafnsstöðum með hryssu undan Kraft frá Efri-Þverá. ( Í eigu Tona og Ingu)

g

 

h

 

h

 

f

 

 

 
 
Hrossaræktarfélagið Fengur í heimsókn
þriðjudagur, 11. maí

 

Laugardaginn 8. mai síðast liðinn komu góðir gestir til okkar úr hestamannafélaginu Feng úr Ásahreppi í heimsókn. Þau skoðuðu sig um í hesthúsinu og síðan var öllum smalað inn í reiðhöll þar sem búið var kynnt.  Teknar voru svo fram 5 hryssur og Anton sagði gróflega frá markmiðum ræktunarinnar.

 Eftir þetta var svo öllum boðið í kaffi og kökur og á meðan var lagt á Vilmund.  Þeir félagar Toni og Vilmundur fóru útá veg og voru með smá sýningu fyrir gesti og má segja að öllu hafi verið til skartað.  Og eins og sjá má á myndunum hér fyrir neðan þá var Vilmundur í vaðandi stuði.

j

 

h

 

h

 

i

 

g

 

 
 
Freymóður í góðum gír.
þriðjudagur, 11. maí

Þar sem Reykjavíkurmeistaramótinu í hestaíþróttum var frestað var ekkert annað að gera en að ríða prógrammið á afleggjaranum heima.

Freymóður var í sínum besta gír og nutu þeir Toni stundarinnar í mikilli blíðu eins og sjá má á myndunum hér fyrir neðan.

Freymóður mun síðan fara upp í Hreppa að sinna úrvals hópi hryssna.  Hér á Feti eru til nokkur tryppi undan honum og verður spennandi að byrja á þeim í haust.  Þau eru stór og falleg og fara um á öllum gangi.

 

d

 

f

 

k

 

d

 
 
Heimsókn frá Hólum
þriðjudagur, 11. maí

 

Síðast liðinn fimmtudag fengum við skemmtilega heimsókn frá 1. árs nemum á Hólum.  Þeim var boðið í súpu og brauð og svo var farið með þau í hesthúsið þar sem Anton upplýsti þau um búið.  Eftir það var hann síðan með sýnikennslu á Vilmundi og að lokum var lagt á 3 Vilmundarafkvæmi og farið út. 

Það var gaman að fá ykkur í heimsókn og takk fyrir komuna.

 

Förra veckan fick vi besök från 1. års studenterna i Hólar.  När de kom hit bjöd vi dom på soppa och bröd och sen gick dom ner till stallet där Anton berettade lite om Fet.  Efter de hade han lite undervisning på Vilmundur og till sist tog dom 3 ungästar, barn till Vilmundur, og visade dom utomhus.

 

Det va väldigt trävligt besök.  Tack för att ni kom hit:) 

 

d

Hér er tekið yfir hópinn, vantar samt einhverja með.

 

h

Steini Bjöss og Sölvi Sig kennarar.  Og Dana vinnukona á Feti.

 

j

Hér er Inga María á honum Þorbirni Vilmundarsyni.

 
 
Jibbí
Mánudagur, 10. maí

 

Þá er besti tími ársins hjá stóhestunum runninn upp.

Vilmundur var glaður þegar hann fékk frelsi til ástarleikja í gærmorgun.  Hann tók stóran hring í hólfinu og hryssuflokkkurinn sem er mættur til hans fylgdi eftir með aðdáun þegar hann spændi um hólfið með tilþrifum.  Við tókum með okkur myndavélina og náðum þessari skemmtilegu mynd af höfðingjanum og fylgdarliði hans.

 

 g

 

 

 
 
Einum manni fátækari
Mánudagur, 10. maí

 

Jæja nú erum við orðin einum manni fátækari hér á Feti.  Fredrik Sandberg fór nú í byrjun mai í Dalland þar sem hann á að taka við búinu eftir landsmót.  Hans verður sárt saknað, en við óskum honum til hamingju með nýja starfið og góðs gengis.

 

Nu är vi en person fattigare här på Fet.  Fredrik Sandberg har fluttat till Dalland där han sen kommer att ta över efter landsmót.  Vi kommer sakna honum men önskar han allt väl och grattis med nyja jobbet.

 

f

 
 
Fyrsta folaldið komið
þriðjudagur, 4. maí

 

Jæja þá er fyrsti alvöru vorboðinn komin.  Á sunnudagskvöldið þegar kíkt var yfir stóðið sáum við alveg nýkastað brúnt kríli.  Það varð mikill spenningur að vita undan hverju það var og Toni og Inga tóku sér labbitúr niður í hólf til að skoða nánar.  Þá kom í ljós að þetta er brún hryssa undan Lilju frá Holti og Vilmundi frá Feti.  Það voru því brosandi hjón sem komu til vinnu daginn eftir og sýndu samstarfsfélögunum myndir af nýja gripnum sínum.

 Hér eru myndir úr gleðigöngunni.

 

y 

 

æ

 
 
 
 
 
Fet Hrossaræktarbú | 851 Hella | 00 354 863-9644 | fet@fet.is

Netvistun - Heimasíðugerð, hugbúnaðarlausnir og hönnun