Fyrsta folaldið komið
þriðjudagur, 4. maí

 

Jæja þá er fyrsti alvöru vorboðinn komin.  Á sunnudagskvöldið þegar kíkt var yfir stóðið sáum við alveg nýkastað brúnt kríli.  Það varð mikill spenningur að vita undan hverju það var og Toni og Inga tóku sér labbitúr niður í hólf til að skoða nánar.  Þá kom í ljós að þetta er brún hryssa undan Lilju frá Holti og Vilmundi frá Feti.  Það voru því brosandi hjón sem komu til vinnu daginn eftir og sýndu samstarfsfélögunum myndir af nýja gripnum sínum.

 Hér eru myndir úr gleðigöngunni.

 

y 

 

æ

 
» Sjá allar fréttir
 
 
 
Fet Hrossaræktarbú | 851 Hella | 00 354 863-9644 | fet@fet.is

Netvistun - Heimasíðugerð, hugbúnaðarlausnir og hönnun