Um Fet  

 

Brynjar Vilmundarsonar er upphafsmaður ræktunarbúsins Fets. Ræktunarstarf hans má rekja aftur til ársins 1984 er hann eignaðist hestfolaldið Merkúr frá Miðsitju sem kveikti ræktunaráhuga hans. Merkúr þessi var síðar seldur til Danmerkur og enn eru dætur Merkúrs hluti af ræktun Fets. Brynjar hefur lagt út í gríðarlega uppbyggingu á Feti og hafa öll beitarhólf verið ræst og girt af mestu fagmennsku, aðgangur er að rennandi vatni alls staðar og hægt að aka um öll hólf, bæði til eftirlits og smölunar.

Hrossaræktarbúið á Feti er þátttakandi í gæðavottunarkerfi Landgræðslunnar og öll hross eru frost- og örmerkt og skráð í gagnagrunninn Worldfeng.

Snemma árs 2007 eignaðist Karl Wernersson og fjölskylda Fet. Að auki eignaðist fjölskyldan næstu jörð við, Efri-Rauðalæk, Sú jörð býr yfir góðum landkosti, bæði til beitar og ræktunar. Mikið hefur verið lagt í uppbyggingu aðstöðunnar á þessu ári, m.a. er búið að girða allar lendur að nýju og nú með þarfir Hrossaræktunar að leiðarljósi. Þrjú hesthús eru á staðnum, rúmgóð reiðskemma ásamt tveimur minni reiðskemmum sem nýtast fyrst og fremst til for- og frumtamninga. Starfsfólki hefur einnig verið búinn ágætur húsakostur.

Fetsræktunin sækir töluvert í Sauðárkrókslínuna og má þakka hann ýmsum sem á undan hafa gengið þann góða árangur sem er að nást hjá okkur. Nokkrar aðkeyptar hryssur í upphafi ræktunarstarfsins hafa reynst gríðarlega vel. Til dæmis Ásdís frá Neðra-Ási, Ísafold frá Sigríðarstöðum og Hrund frá Skálmholti svo einhverjar séu nefndar.

Fetsbúið á hluti í Orra frá Þúfu og hefur Orri reynst afskaplega farsæll í ræktuninni á Feti og skilað mörgum gæðingnum. Meðal annars er hæst dæmda dóttir Orra í heiminum í dag frá Feti, en það er stólpahryssan Bringa sem hlaut á sínum tíma 8.13 fyrir sköpulag og 9.01 fyrir hæfileika, eða 8.66 í aðaleinkun.

Í dag fæðast um 45-50 folöld á ári á Feti og fjöldi hrossa kemur til dóms ár hvert. Mikil áhersla er lögð á að sýna hrossin ung og eru langflest hrossin sem sýnd eru frá Feti 4 og 5 vetra. Frá því að starfsemi hófst á Feti hafa verið þar fastráðnir tamningamenn og í dag starfa allt að 4 tamningamenn við búið að staðaldri.

Fjöldi þekktra keppnis- og kynbótahrossa frá Feti kemur fram árlega og búið hefur eitt hrossaræktarbúa á Íslandi verið tilnefnt þrettán sinnum til titilsins “Ræktunarbú ársins.” Fet hefur þrisvar hlotið þann titil, árin 1998 og 2004 og 2007.

Hross frá Feti hafa verið flutt út um allan heim og má finna allar upplýsingar um afdrif, ættir og uppruna þeirra í gagnagrunni Bændasamtakanna www.worldfengur.com.

Fet er staðsett við þjóðveg 1 rétt við Rauðalæk áður en komið er að Hellu á Suðurlandi.


 
 
Fet Hrossaræktarbú | 851 Hella | 00 354 863-9644 | fet@fet.is

Netvistun - Heimasíðugerð, hugbúnaðarlausnir og hönnun