Fjöldi gæðinga hafa komið frá Feti enda er lögð áhersla á að rækta framfalleg sköruleg hross með gott tölt og geðslag. Á búinu fæðast um 25 folöld á ári.
Við eigum ávallt mikið úrval af álitlegum og góðum söluhrossum á öllum aldri og við allra hæfi.
Á Feti hefur verið starfrækt hrossarækt í rúman aldarfjórðung og er aðstaðan eins og best verður á kosið.
Ræktunarmarkmiðið á Feti er að rækta framfalleg, sköruleg hross með framgöngu sem eftir er tekið.