Hrossaræktarbúið á Feti er þátttakandi í gæðavottunarkerfi Landgræðslunnar og öll hross eru frost- og örmerkt og skráð í gagnagrunninn Worldfeng.
Fjöldi þekkra keppnis- og kynbótahrossa frá Feti koma fram árlega. Búið hefur, eitt hrossaræktarbúa á Íslandi, verið tilnefnt sem “Ræktunarbú ársins” tuttugu sinnum og hlotið titilinn þrisvar sinnum, árið 1998, 2004 og 2007
Á búinu fæðast um 25 folöld á ári en flest hrossin eru sýnd 4 eða 5 vetra gömul.
Ræktunarmarkmiðið á Feti er að rækta framfalleg sköruleg hross með framgöngu sem eftir er tekið.Gangtegundir skulu vera vel aðskildar með áherslu á tölt, það er ekki aðalatriði hvort hrossin séu með skeiði eða ekki.
Geðslagið skal vera meðfærilegt þannig að knapi á hæsta stigi geti krafið það til afkasta en jafnframt að frístundareiðmenn geti notið þeirra sem góðra reiðhrossa.